Rio Intouch Big Nasty FHI
$43.82
$68.8
Rio Intouch Big Nasty flugulína með hægsökkvandi enda. Big Nasty flugulínurnar eru hannaðar til þess að kasta stærri og þyngri flugum. Big Nasty er auðveld lína í notkun og auðvelt að kasta með henni langt jafnvel í verri veðrum. FHI er svokölluð 3D lína „3 density“ þar sem meginhluti línunnar flýtur, miðkaflinn „Hower“, hangir undir yfirborðinu og fremsti hlutinn „Intermediate“ sekkur mjög hægt. Helsti kostur við þetta er að línan sekkur ekki jafnt heldur skóflast fremsti hluti hennar hraðast niður og auðvelt er að koma flugunni ofaní holur eða á bak við steina. Big Nasty var valin besta nýja flugulínan þegar hún kom á markað á sínum tíma. Línan er nú hætt í framleiðslu og kom Rio Predator í staðinn fyrir Big Nasty. Intouch kjarni línunnar er án teygju sem er að mörgu leiti góður kostur. Línan svarar betur þegar þarf að menda henni í straumvatni til þess að stjórna hraða flugunnar auk þess sem hún hleður stangir betur í bakkasti og eykur næmni þegar tökur eru grannar.
Flugulínur