Rio Big Nasty Sink Tip FIS3S5
$39.71
$63.14
Rio Intouch Big Nasty flugulína með sökkenda. Big Nasty flugulínurnar eru hannaðar til þess að kasta stærri og þyngri flugum. Big Nasty er auðveld lína í notkun og auðvelt að kasta með henni langt jafnvel í verri veðrum. Þessi sökkendalína er einstök þegar þarf að koma flugum hratt niður í straumþungu vatni. FIS3S5 er svokölluð „4 density“ lína þar sem megin hluti línunnar flýtur, næsti partur er „Intermediate“ og sekkur hægt, þá kemur sökkhraði 3 og fremsti hlutinn er með sökkhraða 5. Endi línunnar ber því flugu hratt og vel niður, undir megin straumþungann sem er við yfirborð og nær til fiska sem liggja í hægara vatni niður við botn. Intouch kjarni línunnar er án teygju sem er að mörgu leiti góður kostur. Línan svarar betur þegar þarf að menda henni í straumvatni til þess að stjórna hraða flugunnar auk þess sem hún hleður stangir betur í bakkasti og eykur næmni þegar tökur eru grannar.
Flugulínur